Mannæta kærð fyrir óhefðbundar kennsluaðferðirMannæta sem er kennari í líffærafræði við Matvælaháskólann í Zimsenbabwe hefur verið kærð fyrir að hafa tekið iður sín út og þvegið þau í miðri kennslustund. Kennarinn, Mannfirth S. Nrgalin, vildi með því leggja áherslu á námsefnið, en hann var að fræða nemendur um teygjanleika þarmanna. Nrgalin hneykslaði nemendur þó nokkuð en vildi með þessu sýna fram á mikilvægi iðranna til pylsugerðar og kveða niður fordóma gagnvart matvælum sem notuð hafa verið við pylsugerð, að því er Interfax greinir frá.
Kennarinn hafði áður tekið lifur úr dverg í tíma auk þess að hafa gefið sýnikennslu í nýrnabökugerð án samstæðra nýrna, sem þykir nýlunda í Zimsenbabwe. Þá bauð hann nemendum einnig að smakka pylsu sem gerð var úr föðurbróður hans. Þessi kennsla mun hafa fengið á marga nemendur sem fengu nokkrir flog og sumir stukku útum glugga af 2. hæð.
Þjóðskáldið yrkir óð, framboði Zimsenbabwe til dýrðarUm frelsið
Er ég frjáls?
Ég er Er
Hvað er Er?
Að vera Er
FRJÁLS?
fRHELSI er hugtak í ánauð tekur (á) huga í nauð
(nakinna spádóma)
Hinn blindi spekingur ráfar umk
blóðrautt sólarlag
)sá einn veit er víða ratar í konungsríki blindra er hinn eineygi konungur(
sér hann ljósið?
Er Honum orðið ljóst?
Frelsi er orð
orðið er Guð
Hver hefur orðið að
GUÐI?
Frelsi er spurn eftir
eftirspurn eftir framboði
framboði af
-frelsi?
Við trúum á frelsi
frelsi til að trúa
trúum til að fjötra
fjötra undir fargi frelsis
HVAÐ?
Frelsi leið oss í freistni
lát oss falla fyrir freistingum
þínum
-bað villtur maður
Hann var að leita að
sjálfum sér
Frelsi er
fugl í búri
fáviskunnar
-búrið er tómt
Höf: Zakariah Culpa Mathijs Bin Yohanni
Heimdellingar hverfi aftur til lýðræðis – Kjósum ZimsenbabweRíkisstjórn Zimsenbabwe hefur gefið út yfirlýsingu um framboð til formanns Heimdallar.
Forsætisráðherrann Salva Kiir, sem fer með formennsku í Afríkusambandi Corpus Christi, hvatti í dag til þess að Heimdellingar hyrfu aftur til lýðræðis án tafar og sagðist harma að stofnanir félagins hefðu verið yfirteknar af fámennum her stjórnarbjálæðinga og einstaklinga haldna siðfrera. Zimsenbabwe væri eini raunverulegi kosturinn, eftir að Garðabæjarklíkan þróaðist úr Lútherisma yfir í Narcissisma.
Í ræðu sem forsætisráðherran flutti á flokksfundi stuðningsmanna Zimsenbabwe sem útvarpað var beint sagði hr. Kiir orðrétt: “Aðeins með blóðugu stríð gegn trúvillingunum mun friður ríkja meðal manna og bandalög haturs verða brotin á bak aftur. Við megum ekki missa Heimdall í glötun og tortímingu. Zimsenbabwe er málstaðurinn, í Zimsenbabwe býr hinn lifandi Jesú og Zimsenbabwe mun veita yður eilíft líf. Réttbornir bræður og systur! Kjósið Zimsenbabwe sem leiðtoga Heimdalls í næstu kosningum – aðrir valkostir leiða til tortímingar.”