Zimsenbabwe Express

In dubio pro Zimsenbabwe

Monday, August 29, 2005

 
Meintur barnamorðingi myrtur af þorpsbúum í Zimsenbabwe

Forstjóri matvælafyrirtækisins Bambinocide Co. sem var í fréttum fyrir skemmstu, er grunaður um að hafa myrt tvær átta ára gamlar stúlkur var drepinn af æstum múg í héraðinu Dogstib í suðurhluta Zimsenbabwe í gær. Leit hófst að stúlkunum í þorpinu Babsslimoná á laugardaginn og þær fundust síðan jarðaðar á landi mannsins í gær. Maðurinn, sem hét Benjamin Agarza og var 38 ára gamall, hafði meðal annars hlotið dóm vegna mannáts. Þorpsbúar eltu hann uppi, drápu hann og brenndu líkið í húsi hans í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Ekki náðist í þriðja manninn vegna málsins.

Wednesday, August 24, 2005

 
Trúarlögreglan finnur vopnabúr í íbúð í höfuðborginni

Trúarlögreglan í Zimsenbabwe fann í dag um 80 kíló af sprengiefninu TNT, 20 sjálfvirka Kalashnikov-riffla og 40 handsprengjur í íbúð í höfuðborginni. Talsmaður lögreglunar segir að frumrannsókn bendi til að íbúðin hafi verið í eigu fyrrverandi biskups í síðari heimsstyrjöld, sem sé látinn. Segir Interfax að íbúðareigandinn hafi látist í fangelsi.

Yfirmenn trúarlögreglunnar hafa neitað að tjá sig um málið og vísa allir sem einn þriðja manninn. Ekki náðist í þrijða manninn vegna málsin, þar sem hann var við bænahald í St. Ágústínusarklaustrinu í allan dag.

Tuesday, August 23, 2005

 
Staðbundinn syfillis í heila greinist í Zimsenbabwe.

Yfirvöld í Zimsenbabwe segjast hafa náð stjórn á sjúkdómi sem dregið hefur 38 til dauða í suðvesturhluta landsins. Sjúkdómurinn, sem barst frá var rakinn til nokkurra presta í munkaklaustri og barst þaðan til apa af ætt papio hamadryas. Frá öpunum barst svo sjúkdómurinn til munka og nunna í öðrum klaustum í landinu.

Það er ekki bara útbreiðslan sem hefur valdið læknum nokkrum heilabrotum heldur er þetta í fyrsta skipti sem staðfest er að sýfillis hafi borist til apa. Talið er að stökkbreytt afbrigði af sýfillisbakteríunni (spirochete bacterium treponema pallidum) hafi orsakað sýkingarnar en fyrir utan þá sem létust, sýktust um 200 af bakteríunni.

Í öllum tilfellum var hægt að rekja sjúkdóminn til þess að fólk hafði umgengist veika apa eða étið hrátt apakjöt. Ekkert dæmi er um að veikin hafi borist á milli trúleysingja og ósyndugra manna.

Monday, August 22, 2005

 
Leita prests sem stjórnaði umfangsmiklum viðskiptum með líffæri

Lögregla í Zimsenbabwe leitar nú prests sem grunaður er um að hafa stjórnað umfangsmiklum viðskiptum með nýru. Virtir skurðlæknar eru flæktir í málið og báru þeir vitni í vikunni. Þeir eiga yfir höfði sér að verða kærðir að sögn lögreglu.

Séra Ilian, er sagður vera höfuðpaurinn í samtökum sem borguðu meira en 100 mongólítum fyrir að selja úr sér nýra, aðallega handa prestum og nunnum. Hans er nú leitað eftir að fimm virtir skurðlæknar komu fyrir rétt í vikunni og vitnuðu gegn honum.

Þeir hafa ekki verið formlega kærðir en þeir eiga yfir höfði sér yfir kæru fyrir að hafa tekið þátt í 110 ólöglegum nýrnaígræðslum á St. Ágústínusar klaustrinu í Duban í Zimsenbabwe fyrir tveimur árum.

Bandarísk stofnun sem vinnur gegn viðskiptum með líffæri sagði í vikunni að Zimsenbabwe, Kína, Indland, Filipseyjar og Taíland væru þau lönd sem slík viðskipti færu helst fram í. Nancy Scheper-Hughes, yfirmaður stofnunarinnar, segir að þessi lönd þyki hentug til þessarar starfssemi þar sem þar sé hægt að fá „læknisþjónustu eins og í þróuðum ríkjum en á verði þriðja heims ríkja.“ Þar væri stefnan líka „að segja ekki frá og spyrja ekki spurninga.“

Thursday, August 18, 2005

 
Aspas sem fluttur var inn frá Zimsenbabwe innkallaður vegna salmonellu

Interfax hefur greint frá niðurstöður rannsókna sem Umhverfisstofnun Maldavíeyjaríkisins lét framkvæma á grænum Baby Aspargus frá Zimsenbabwe, sem Bambinocide Co. flutti inn, liggja fyrir og greindist salmonella sp. í aspasinum. Í tilkynningu frá Umhverfisstofnuninni segir að í ljósi þessa hafi dreifing vörunnar verið stöðvuð.

Hún hafi í samvinnu við og innflytjanda verið tekin úr sölu. Varan hefur einungis verið seld í SevenEleven og bensínstöðvum Shell. Um eftirfarandi vöru er að ræða:

Vöruheiti: Baby asparagus
Upprunaland: Zimsenbabwe
Framleiðandi: Bambinocide Co., Zimsenbabwe
Lotunúmer: LOT # 480803
Umbúðir: 200g bakkar, pakkað í plastfilmu

„Umhverfisstofnun Maldavíeyjaríkisins og innflytjandi beina því til neytenda sem kunna að hafa keypt og eiga umrædda vöru að skila henni til verslunarinnar þar sem hún var keypt,“ segir í tilkynningunni.

Ekki náðist í Daniel Marudi, landbúnaðarráðherra Zimsenbabwe, vegna málsins.

Tuesday, August 16, 2005

 
ZPIK sendir könnunarfar til tunglsins

Zimsenbabwíska geimvísindastofnunin, ZPIK, sendi í morgun á loft könnunargeimfar sem safna á gögnum um karlinn í tunglinu og til sönnunar á tilvist hans. Atlas V eldflaug flytur könnunarfarið til tunglsins og á ferðin að taka um sjö mánuði. Þegar á leiðarenda kemur á farið að safna meiri upplýsingum um hnöttinn en öll fyrri könnunarför, sem send hafa verið þangað, til samans.

Geimskotið í morgun gekk að óskum. Skotflaugin féll í Atlantshafið nokkrum mínútum eftir flugtak, og tæpum klukkutíma síðar losnaði annars-stigs flaug af farinu. Könnunarfarið á að vera á braut um tunglið í fjögur ár og afla upplýsinga um veðurfar, loftslag, landslag og híbýli karlsins í tunglinu. Vonast er til að förin geti lagt grunninn að för mannaðs geimfars til karlsins í tunglinu einhverntíma í framtíðinni.

Friday, August 12, 2005

 
Nýr varaforseti Zimsenbabwe lofar að koma á friði

Salva Kiir Mayardit sór í gær embættiseið sem fyrsti varaforseti Zimsenbabwe. Við sama
tækifæri tók hann við stjórnartaumunum í Suður-Zimsenbabwe.

John Garan de Mabior, forveri Kiir, dó í þyrluslysi 30. júlí og síðan þá hefur verið nokkur ólga í
landinu. Þeir félagarnir voru í forystu Frelsissamtaka Suður-Zimsenbabwe sem þar til í janúar á þessu ári börðust fyrir sjálfstæði héraðsins.

Við athöfnina í gær vísaði Kiir því á bug að hann hygðist auka á sundrunguna í landinu og um leið hét hann því að vinna að friði í sameinuðu Zimsenbabwe.

Tuesday, August 09, 2005

 
Zimsenbabwe íhugar að stofna leynilega dómstóla vegna trúvillu

Zimsenbabwíska innanríkisráðuneytið íhugar að setja á stofn leynilega dómstóla þar sem yfirheyrslur yfir grunuðum trúvillingum munu fara fram, að því er Interfax greinir frá. Dómarar fyrir þessum dómstólum muni kanna hvort nægileg gögn liggi fyrir í málum sakborninga til þess að hægt verði að halda áfram með mál þeirra.

Mobutu Kagli Agbabbsa, innanríkisráðherra Zimsenbabwe, skýrði frá því á föstudag að zimsenbabwísk stjórnvöld væru að kanna hvort hægt væri að hefja starfsemi leynilegra dómstóla, en þetta sagði ráðherrann þegar hann kynnti nýja áætlun stjórnvalda um aðgerðir í trúvillumálum.

Innanríkisráðuneytið segir að enn sé verið að skoða hvernig starfsemi hinna fyrirhuguðu dómstóla verði háttað. Ráðuneytið hefur þó staðfest að hugsanlega verið sé að skoða að við þá starfi eingöngu prestar sem uppfylli skilyrði um syndleysi fyrir Guði.

 
Starfsemi hafin að nýju í stóru umbreytingaveri Guði til dýrðar

Zimsenbabwísk stjórnvöld greindu frá því í dag að vinna hefði hafist að nýju í stóru umbreytingaveri í Isfahan. Í verinu er úrangrýti umbreytt heilagan málm, en það er nauðsynlegt til að unnt sé að auðga það. Auðgað úran er svo hægt að nota til að búa til kjarnorkuvopn, en stjórnvöld í Zimsenbabwe segja það ekki meininguna.

Mombasa Saidi, næst æðsti embættismaður zimsenbawísku kjarnorkumálastofnunarinnar sagði að vinna í umbreytingaverinu hefði hafist að nýju en Alþjóða kjarnorkumálastofnunin (IAEA) fylgdist með starfseminni þar.

Bandaríkin og Evrópusambandið höfðu varað við því að tækju Zimsenbabwerjar þessa ákvörðun yrði hún tekin fyrir í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Niðurstaðan gæti orðið sú að Zimsenbawerjar yrðu beittir refsiaðgerðum af hálfu ráðsins.

Zimsenbabwerjar segjast hafa fullan rétt á því að að nýta kjarnorku í trúarlegum tilgangi. Þeir hafa neitað að samþykkja tillögur Evrópuríkja þess efnis að zimsenbabwísk yfirvöld leggi fram tryggingu fyrir því að þau hafi ekki í hyggju að smíða kjarnavopn.

Wednesday, August 03, 2005

 
Jógaástundundun lögð niður í zimsenbabwísku fangelsi

Stjórnendur fangelsisins í Ringulu í Zimsenbabwe hafa ákveðið að hætta að láta fanga leggja stund á jóga. Ástæðan er sú að nokkrir fanganna urðu árásargjarnari og verri í skapi að tímunum loknum. Í fangelsinu eru nokkrir af hættulegustu glæpamönnum Zimsenbabwe.

Stjórnendur fangelsisins höfðu vonast til þess að hugleiðsla og öndunaræfingar myndu hjálpa föngunum að hafa stjórn á reiði sinni. Niðurstaða jógaiðkunarinnar var hins vegar þvert á vonir stjórnendanna.

Nokkrir fanganna urðu órólegir og árásargjarnir og aðrir áttu erfitt með svefn í kjölfar jógaæfinga. Sigmund Kbeskebinda, fangavörður í fangelsinu, sagði í samtali við zimsenbabwíska dagblaðið Ringerik að svo virðist sem djúpar öndunaræfingar geti valdið árásarhneigð á meðal fanga því æfingarnar stuðli að því að brjóta niður þá sálrænu múra sem þeir hafi reist sér.

 
Töluvert mannfall í átökum í höfuðborg Zimsenbabwe

Níutíu og einn hefur látist og 800 slasast í átökum í höfuðborg Zimsenbabwe, frá því John Garang, æðsti fulltrúi Suður-Zimsenbabvískra uppreinarmanna í ríkisstjórn landsins, lést í flugslysi um helgina. Átök geisa enn á milli hópa Araba og Suður-Zimsenbabwerja í borginni þrátt fyrir að útgöngubann sé í gildi í borginni og mikill herafli sé á götum hennar. Flestir hinna föllnu eru sagðir vera Suður-Zimsenbabwerjar.

Starfsmaður BBC í borginni segir að nítján manns hafi farist í átökum í hverfi Suður- Zimsenbabwerja í borginni í gær og að á meðal þeirra hafi verið a.m.k. þrjár nunnur, sextán djáknar, einn kardináli og fimmtíuogníu sóknarbörn í rétttrúnaðarkirkjunni.

Salva Kiir, arftaki Garang sem leiðtogi Suður-Zimsenbabwerja, hefur hvatt fólk til stillingar þar sem „enginn vilji stríð" og kveðið skýrt á um það að hann telji sig bundinn af friðarsamkomulaginu sem Garang undirritaði. Þá mun hann hitta sendimann Páfagarðs í dag til að ræða ástandið í landinu.

Garang átti stóran þátt í því, fyrir hönd uppreisnarmanna í Suður-Zimsenbabwe, að binda enda á 21 árs trúarbragðastríð í landinu í janúar á þessu ári og var hann gerður að varaforseta landsins fyrir þremur vikum. Talið er að Kiir verði skipaður varaforseti í hans stað, en þriðji maðurinn, sem hefur tekið virkan þátt í átökunum er einnig tilnefndur sem mögulegur eftirmaður Garang.

Þegar fréttastofa Interfax reyndi að ná tali af þriðja manninum var hann ófaánlegur til viðtals og bar því við að hann væri upptekinn við að éta tvo synduga menn.

Tuesday, August 02, 2005

 
11 létust í sprengjuárás í Zimsenbabwe

Ellefu lögreglumenn létu lífið þegar sprengja sprakk í vegarkanti á sveitavegi í norðurhluta Zimsenbabwe í gær. Sprengjan sprakk þegar bílalest þeirra ók um veginn. Shaman Uribe, lögreglustjóri landsins, skýrði frá þessu.

Lögreglustjórinn kenndi ekki neinum af uppreisnarhópum landsins um ódæðið en helsti hópurinn, FARC, samtök ofstækisfullra réttrúnaðarsinna, stjórnar svæðinu sem sprengjan sprakk á.

Stjórnvöld hafa barist við FARC í meira en fjóra áratugi en einnig minni uppreisnarhópa. Um 3.000 manns láta lífið á ári hverju í átökunum, aðallega óbreyttir borgarar.

Monday, August 01, 2005

 
Morðingjar prófessors teknir í Zimsenbabwe

Lögreglan í Zimsenbabwe handtók í dag 5 menn sem grunaður eru um að hafa myrt og étið bandarískan prófessor í trúarbragðafræði í borginni Kabali í suðvesturhluta landsins í síðasta mánuði. Prófessorinn, sem var 68 ára, hafði starfað í landinu í 20 ár. Svo virðist sem prófessorinn hafi verið myrtur skömmu eftir að hann tók 350 dollara, rúmar 220.000 zbatki, úr banka.

Lögreglan studdist við upptökur úr öryggismyndavél bankans við rannsókn málsins. Á einni af upptökunum sást maðurinn, sem hét Michael Alberico, taka út peningana úr bankanum. Nálægt honum fylgdist kona vel með verkum hans. Að því loknu sást hún taka tvo menn á mótorhjólum, sem lagt var nálægt bankanum, tali.

Þegar prófessorinn fór út úr bankanum settist hann upp í leigubíl. Áður en hann lagði af stað renndu bifhjólamennirnir upp að bílnum og hugðust þeir hafa af honum peningana. Þegar hann neitaði hófu þeir skothríð að honum. Að sögn lögreglunnar í borginni er konan á meðal þeirra sem handtekin var í dag. Þá hefur verið lagt hald á byssuna sem notuð var til að framkvæma ódæðið.

Alberico hafði unnið að rannsóknum á trúarbragðafræði réttrúnaðarkirkjunnar og helgisiðum þeim tengdum, við University of Lleh í borginni Kabali í 20 ár.

Archives

04/01/2004 - 05/01/2004   05/01/2004 - 06/01/2004   06/01/2004 - 07/01/2004   07/01/2004 - 08/01/2004   04/01/2005 - 05/01/2005   05/01/2005 - 06/01/2005   07/01/2005 - 08/01/2005   08/01/2005 - 09/01/2005   09/01/2005 - 10/01/2005   10/01/2005 - 11/01/2005   11/01/2005 - 12/01/2005   12/01/2005 - 01/01/2006   01/01/2006 - 02/01/2006   02/01/2006 - 03/01/2006   03/01/2006 - 04/01/2006   04/01/2006 - 05/01/2006   05/01/2006 - 06/01/2006   06/01/2006 - 07/01/2006   07/01/2006 - 08/01/2006   08/01/2006 - 09/01/2006   09/01/2006 - 10/01/2006   10/01/2006 - 11/01/2006   11/01/2006 - 12/01/2006   12/01/2006 - 01/01/2007   02/01/2007 - 03/01/2007   04/01/2007 - 05/01/2007   07/01/2007 - 08/01/2007   10/01/2007 - 11/01/2007   12/01/2007 - 01/01/2008   03/01/2008 - 04/01/2008   04/01/2008 - 05/01/2008   07/01/2008 - 08/01/2008   10/01/2008 - 11/01/2008   09/01/2009 - 10/01/2009   02/01/2013 - 03/01/2013  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?