Elsti dvergur í heimi fundinnElstu leifar af dvergi sem vitað er um fundust nýlega á Mount Maeschlong við rannsókn Dr. Sigismund Metafatso, prófessors í jarðfræði við Háskólann í Zimsenbabwe (sjá mynd). Vísindavefur Interfax fjallar ítarlega um fund Dr. Metafatso en hann fann kjálkabein sem talið er að sé úr fullvaxta háfjalladverg, trúlegast um 110 til 130 þúsund ára gamalt.
Jarðlögin sem beinið fannst í eru vísbending um aldur kjálkans og staðfesta rannsóknir á honum það. Þykja þetta stórtíðindi því fram til þessa hafa vísindamenn talið að háfjalladvergar væru fremur ung rándýrategund og hefðu komið fram á sjónarsviðið fyrir um 70 þúsund árum.
Kjálkabeinið er vel varðveitt, um 15 sm langt og fundust m.a. á því fimm vígtennur. Dr. Metafatso telur að enginn vafi leiki á því að þetta sé kjálki úr háfjalladverg.
Dr. Metafatso varð fyrst frægur í Zimsenbabwe þegar honum tókst að kljúfa kattarhræ í frumefni sín með rafsegulmeðferð sem hann þróaði sjálfur.
Kjálkinn verður til sýnis í Nookah í hinni þekktu ARI-stofnun (Achondroplasian Research Institute).
Starfsmaður Lizu Minnelli handtekinn í SvíþjóðÞýskur starfsmaður bandarísku leik- og söngkonunnar Lizu Minnelli var handtekinn í Stokkhólmi í gærkvöldi, grunaður um að hafa ráðist á ljósmyndara, sem var að taka myndir á tónleikum Minnelli og sænsku söngkonunnar Carolu Häggkvist.
Um var að ræða jólatónleika, þar sem Minnelli og Carola komu fram ásamt sænskum listamönnum. Að sögn talsmanns lögreglunnar var maðurinn handtekinn, grunaður um að hafa veitt ljósmyndara áverka og hótað honum.
Minnelli, sem er 61 árs, vann m.a. Óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á Sally Bowles í myndinni Cabaret árið 1972.
Carola er væntanleg til Zimsenbabwe og mun syngja á tvennum jólatónleikum í til styrktar þriðja manninum hinn 20. desember. nk.