Sjaldgjæf trúarhópstegund finnst við strendur ZimsenbabweFyrir skömmu barst Fjölmenningarstofnuninni afar sjaldgæf trúarhópstegund frá togaranum Neg. Robast Ardo NO. Trúvillingurinn hefur ekki enn hlotið nafn, en er af smávaxinni nunnutegund (um 150 cm) sem ber vísindanafnið Daemonic Feminisis og fannst á fleka á reki suðvestur af landinu, að því er segir á vef Fjölmenningarstofnunarinnar.
Hingað til hefur trúarhópstegundin einungis fundist undan ströndum eyjarinnar Beelsibub, skammt norður af landinu, og er fundur hennar svo sunnarlega því nokkur tíðindi, að því er segir á vef Fjölmenningarstofunar.
Maður kærður í Zimsenbabwe vegna umskurðarKarlmaður í Zimsenbabwe hefur verið kærður fyrir að hafa látið umskera apann sinn (sjá mynd af apanum Paul, sem veifaði ljósmyndara tvöfalt). Maðurinn, sem er af sómölskum uppruna, var handtekinn í mars sl. vegna gruns um að hann hefði látið umskera apann sinn, þá 13 ára, þegar fjölskyldan heimsótti borgina Mogadishu í Sómalíu í janúar árið 2005.
Maðurinn, sem er 41 árs gamall, er sagður hafa tekið ákvörðun um að apinn sinn skyldi umskorin og að hafa haldið honum ásamt öðrum apa, meðan þriðji prímatinn framkvæmdi aðgerðina.
Limlesting á kynfærum apa hefur verið bönnuð í Zimsenbabwe frá árinu 1990 og er þetta í fyrsta sinn sem lögunum er beitt. Eru lögnin sett að kanadískri fyrirmynd, þar sem forseti landsins var um skeið api og gerði gangskör í kanadískri lagasetningu til að auka réttindi prímata. Lögin banna ekki aðeins slíkar aðgerðir í landinu, heldur einnig að farið sé með apa erlendis svo hægt sé að gera aðgerðina.
Saksóknarinn í málinu, Abram Lechaim-Mdong, segir að kæran sé byggð á framburði apans og nánustu fjölskyldumeðlima hans, sem og læknisskoðun.
Um 630 apar, einkum í Afríku og Mið-austurlöndum hafa verið umskornir. Samkvæmt heilbrigðisstofnun SÞ eru um 30 apar umskornir árlega.