Zimsenbabwe Express

In dubio pro Zimsenbabwe

Friday, August 18, 2006

 
Dómara vikið úr starfi vegna samskipta við ósýnilega dverga

Florentino Floro, Zimsenbabwískum hæstaréttardómara, vísað úr embætti í apríl síðastliðnum vegna þess að hann sagðist hafa ráðfært sig við dularfulla og ósýnilega dverga. Floro áfrýjaði brottrekstrinum en tapaði málinu. Þriggja ára rannsókn hafði áður farið fram á starfsháttum hans sem leiddi til brottrekstursins. Floro sagðist hafa rætt við þrjá dularfulla dverga, Armand, Luis og Angel, sem hefðu hjálpað honum að slaka á í réttarhléum.

Dómstóllinn sem vísaði Floro úr embætti sagði yfirskilvitleg fyrirbæri ekki hluta af starfi dómara og studdi niðurstöðu læknis að dómarinn væri veikur á geði. Floro segir það ekki réttlætanlegt að hann hafi verið rekinn fyrir það eitt að trúa á mátt þessara dverga. Hann hefði samið við dvergana um að geta skrifað á meðan hann væri í leiðslu og segir að fólk hafi getað séð hann á tveimur stöðum í einu.

Floro skipti um dómaraslá á hverjum föstudegi, meðan hann gegndi enn starfi dómara, til að ,,endurhlaða skyggnigáfu sína", eins og hann orðaði það. Í bréfi til dómstólsins skrifaði Flora að ,,úr myrkrinu myndu nöfn hans og dverganna þriggja verða ódauðleg.“ Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að dvergabandalag Floro græfi undan trúverðugleika hans í starfi. Interfax segir frá þessu.

Comments:
Er þetta Thurgood?
 
Hi, guantanamera121212
 
Post a Comment

<< Home

Archives

04/01/2004 - 05/01/2004   05/01/2004 - 06/01/2004   06/01/2004 - 07/01/2004   07/01/2004 - 08/01/2004   04/01/2005 - 05/01/2005   05/01/2005 - 06/01/2005   07/01/2005 - 08/01/2005   08/01/2005 - 09/01/2005   09/01/2005 - 10/01/2005   10/01/2005 - 11/01/2005   11/01/2005 - 12/01/2005   12/01/2005 - 01/01/2006   01/01/2006 - 02/01/2006   02/01/2006 - 03/01/2006   03/01/2006 - 04/01/2006   04/01/2006 - 05/01/2006   05/01/2006 - 06/01/2006   06/01/2006 - 07/01/2006   07/01/2006 - 08/01/2006   08/01/2006 - 09/01/2006   09/01/2006 - 10/01/2006   10/01/2006 - 11/01/2006   11/01/2006 - 12/01/2006   12/01/2006 - 01/01/2007   02/01/2007 - 03/01/2007   04/01/2007 - 05/01/2007   07/01/2007 - 08/01/2007   10/01/2007 - 11/01/2007   12/01/2007 - 01/01/2008   03/01/2008 - 04/01/2008   04/01/2008 - 05/01/2008   07/01/2008 - 08/01/2008   10/01/2008 - 11/01/2008   09/01/2009 - 10/01/2009   02/01/2013 - 03/01/2013  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?