Neyðarástand blasir við á kjötmörkuðum í Zimsenbabwe"Sú staða gæti hæglega komið upp í sumar að rétttrúnaðarkirkjan og klausturhaldarar stæðu frammi fyrir því vandamáli að eiga ekki nægilegt mannaket inn á markaðinn." Þetta segir Michael Mixa-Tgana, príor í Excelsiorklaustirnu, en mjög góð sala hefur verið á mannaketi síðastliðin tvö ár. Á síðustu 12 mánuðum hafa selst rúmlega 7.500 tonn af mannaketi, en þetta er 18% meiri sala en var á árinu 2003. Það ár var reyndar versta ár sem kirkjunnar menn hafa upplifað.
Í fyrrasumar var allir skrokkar í landinu að klárast þegar sláturtíð hófst. Söluaukningin sem varð í fyrra hefur haldið áfram á þessu ári. Mixa-Tgana segir að kjötbirgðir séu 8-10% minni núna en á sama tíma í fyrra. Það geti því orðið vandamál fyrir klerkar að útvega nægilega mikið kjöt inn á markaðinn ef góð sala verði á mannaketi í sumar. Hann segir að um 300 tonn af mannaketi sem átti að flytja úr landi séu enn í landinu og þetta kjöt verði ekki flutt út nema í ljós komi að nægt framboð verði á kjöti á innanlandsmarkaði.
Mixa-Tgana segir að dregið hafi verið úr markaðssetningu á mannaketi innanlands síðustu mánuði beinlínis vegna þess að birgðastaðan sé lág.
Bambinocide Inc. hefur gert tillögu til nýkjörins vígslubiskups í Nookah, herra Methusalem Nsaniti um að svokölluð útflutningsskylda á þessu ári verði 4-10%, en það þýðir að 7-8% af allri framleiðslu verða flutt úr landi. Ekki eru nema tvö ár síðan útflutningsskyldan var 36%. Þá voru 2.400 tonn flutt út, en nú eru horfur á að ekki verði flutt út nema 700 tonn. Minni útflutningur hefur í för með sér tekjuaukningu fyrir rétttrúnaðarkirkjuna því að lægra verð fæst fyrir kjöt sem flutt er út. Nsaniti segir að nú séu bændur í þeirri stöðu að þurfa að velja hvaða erlendu mörkuðum þeir eigi að sinna. Menn muni að sjálfsögðu eingöngu selja á þá markaði sem borgi hæsta verðið. Breytt gengi geri það hins vegar að verkum að innflutningur á dvergakjöti sé hagstæðari nú en í fyrra.