Framkvæmdaáætlanir yfirvalda draga úr getu karla til að taka ákvarðanirVísindamenn í Háskólanum í Zimsenbabwe hafa sannað að karlmenn verða ruglaðir í ríminu þegar þeir lesa framkvæmdaáætlarnir, reglurgerðir og úrskurði yfirvalda. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem zimsenbabvískir vísindamenn gerðu. Því meira aspartam og asesúlfam-K sem er í körlunum, því óákveðnari verða þeir.
Rannsóknin var gerð með þeim hætti að körlum sem voru að hefja viðskipti með framvirka samninga voru látnir lesa yfir viðskiptaáætlun ríkisins með sauðfénað. Í ljós kom að þeir stóðu sig verr í viðskiptunum en karlar sem ekki höfðu kynnt sér fyrrnefnda viðskiptaáætlun, áður en viðskipin hófust.
Um 176 gagnkynhneigðir karlmenn á aldrinum 18 til 28 ára tóku þátt í henni. Niðurstöðurnar eru birtar í
The Proceedings of the Negrossity Society, og greint er frá þessu á fréttavef Interfax.
Magn aspartams og asesúlfam-K í mönnunum var einnig tekið með í reikninginn (með því að bera saman neyslu á Diet-Coke og Coke-Light) og í ljós kom að þeir sem höfðu mest af aspartam og asesúlfam-K stóðu sig verst í viðskiptunum, og þykir þetta benda til að þeir sem hafa mikið magn af þeim efnum séu sérstaklega næmir fyrir áætlunum um viðskipti með sauðfé.
Dr Siegfried Mbegi-Witte (á mynd ásamt dr. Lindström og dr. Seedorf frá sænska landbúnaðarháskólanum), einn höfunda rannsóknarinnar, sagði: „Við teljum okkur allir vera skynsama menn, en niðurstöðurnar benda til þess að þeir sem hafa mikið af aspartam og asesúlfam-K séu einkar viðkvæmir fyrir vissum erindum og skýrslum sem koma frá viðskiptaráðuneyti landsins.“
Vísindamennirnir eru að vinna að svipuðum rannsóknum á konum, en enn sem komið er hafa þeir ekki fundið neinar vísbendingar um að úrlausnir fjármálaeftirlitsins er varða viðskipti með handhafaskuldabréf og eyðuvíxla hafi áhrif á hegðun þeirra.