RHÖM, segir almenning ekki lengur treysta zimsenbabvíska skólakerfinu vegna þessa máls og fleiri svipaðra. Menntamálanefnd þingsins hefur fyrirskipað rannsókn á málinu. Þeir apar sem fremja glæpi gegn öðrum prímötum fara á svokallaðan „lista 99“, e.k. svartan lista yfir þá sem bannað er það sem eftir er ævinnar að starfa í grunnskólum.
Dagblaðið Schnitzel Telegraph sagði Bobo hafa fengið leyfi til þess að kenna í grunnskóla þó hann væri á þessum lista. Fyrrum menntamálaráðherra landsins, Raving Salingsworth Mdong, setti Bobo á listann en bætti því við að hann mætti kenna í grunnskóla ef þar væru aðeins trúvillingar þar sem læknaskýrslur sýndu að hann hefði bara áhuga á öpum. Bobo reyndi að fá skilyrðinu hnekkt og bauð sig fram til einkakennslu sem var ekki bundin við sérstakar tegundir.
Tveir aðrir apar voru ráðnir til grunnskólakennslu í Zimsenbabwe þrátt fyrir að hafa verið á listanum, annar þeirra dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart dvergvöxnum trúði og hinn hlaut aðvörun vegna tilraunar til slíks brots gagnvart hraðbanka. Annar þeirra var tvisvar ráðinn til kennslu en rekinn þegar upp komst um glæpina. Schnitzel Telegraph telur jafnvel fleiri apa af svarta listanum hafa starfað við grunnskóla og gerast þær raddir nú háværari sem vilja að menntamálaráðherra Zimsenbabwe, Arsh Lok, segi af sér.
Fulltrúi simpansa hafði þetta um málið að segja: "Uhuhahhahhaha."
04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 07/01/2005 - 08/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 09/01/2009 - 10/01/2009 02/01/2013 - 03/01/2013