Frumkvöðull á sviði einræktunar fellur í ónáð í kjölfar hneykslismálsZimsenbabwískur frumkvöðull á sviði einræktunar hefur sagt upp störfum og beðist afsökunar á því að hafa notað egg úr hænu í þágu rannsókna sinna á stofnfrumum manna. Prófessor Harry Domaes var formaður heimssamtaka stofnfrumumiðstöðvarinnar, sem opnaði nú í nóvember í Jakarta.
„Mér þykir það afar leitt að ég þurfi að segja almenningi frá orðum sem eru bæði skammarleg og hræðileg,“ sagði Domaes opinberlega.
Samkvæmt alþjóða læknaviðmiðum er varað við því að nota egg frá hænum í rannsóknum á stofnfumum manna, enda séu hænurnar eigi prímatar í hefðbundnum skilningi. En Domaes hafði áður eiræktað hænuna Pollý (sjá mynd) með góðum árangri.
Heilbrigðisráðuneytið í Zimsenbabwe heldur því hinsvegar fram að prófessorinn sé hvorki gerst sekur um að gera eitthvað ólöglegt né siðferðilega rangt, þar sem eggin voru gefin honum, án hans vitundar, af forstöðumanni húsdýragarðsins í höfuðborginni Nookah. Þá segir ráðuneytið að rannsóknirnar hafi verið framkvæmdar áður en að lög um gæludýr tóku gildi í janúar sl.
Domaes hefur hlotið heimsfrægð fyrir að vera fyrstur manna til að einrækta samkynhneigðan karlamann (homo erectus), sem þótti afar umdeilt á tímabili. Hann einræktaði jafnframt fyrstu mennina með fjórðu geivörtuna og vann stofnfrumur úr þeim.
Fyrr á þessu ári hafði Domaes tilkynnt að hann ætlaði að einrækta Volkswagen bjöllu fyrstur manna.
Hneykslismálið leit dagsins ljós eftir að þekktur aðstoðarmaður Domaes, Gerald Mbegi-Gali, sleit samstarfi þeirra og greindi frá því að hann hefði áhyggjur af því hvernig hópurinn undir stjórn Domaes útvegaði sér egg úr hænum.
Ekki náðist í þriðjamanninn vegna málsins.