Nýr faraldur berst til Zimsenbabwe
Rannsóknarstofnun rétttrúnaðar í Zimsenbabwe hefur borið kennsl á og náð að uppræta hinn svokallaða klukk-vírus sem herjað hefur á heimsbyggðina. Mun Zimsenbabwe vera fyrsta landið sem nær að eyða téðum vírus næstum algerlega.
Fyrst bar á vírusnum þegar maður sem kallaður hefur verið Th. og er talinn tengjast þriðjamanninnum, sendi eintak af téðum sjúkdómi í pósti til forseta Zimsenbabwe. Ítrekaðar tilraunir voru gerðar á trúvillingum til að uppræta sjúkdóminn, en það var ekki fyrr en óskað var liðsinni rétttrúnaðarkirkjunnar að lausn fannst.
Með hliðsjón af ofangreindu og án þess að nánar sé farið í nánari útskýringar gerði kardináli Zimsenbabwe, hæstvirtur Methusalem Nsaniti, sérfræðingur í symbólisma og kreddukenningum, grein fyrir eftirfarandi fimm atriðum á blaðamannafundi fyrr í dag:
1. Enginn í Zimsenbabwe hefur verið étinn af trúvillingi, a.m.k. ekki án bernaissósu.
2. Forstjóri Bambinocide Co. er ekki api af tegundinni Pongo pygmaeus.
3. Stjórnarskrá Zimsenbabwe var unnin af Charlton Heston.
4. Allt er vænt sem vel er grænt.
5. Annaðhvort eru staðhæfingar 1. og 3. réttar eða staðhæfingar 1. og 5. rangar.
Hæstvirtur kardináli M. Nsaniti vildi ennfremur koma á framfæri eftirfarandi: "Í því skyni að uppræta endanlega þá bölvun sem lögð hefur verið á okkar dásamlega ríki mun ég tilnefna fimm aðra til hljóta þá ógæfu að vera boðberar klukksins ógurlega: Ara Karlsson, Dverginn, Eirik Sördal, Vatíkanið og Kristilega vefritið TADDS.
Amen."
04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 07/01/2005 - 08/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 09/01/2009 - 10/01/2009 02/01/2013 - 03/01/2013