Ísland ætlar að opna sendiráð í ZimsenbabweFyrrum þingkonan og þekktur afrósentric, Guðrún Ögmundsdóttir, sór embættiseið fyrr í dag, en hún verður næsti sendiherra Íslands í Zimsenbabwe.
Guðrún Ögmundsdóttir er fædd í Reykjavík 19. okt. 1950. Kjörfor.: Ögmundur Jónsson (f. 18. apríl 1918, d. 31. jan. 1971) vélstjóri og bifvélavirki, yfirverkstjóri hjá Vita- og hafnamálastofnun og k. h. Jóhanna J. Guðjónsdóttir (f. 16. febr. 1918, d. 23. des. 1986). Móðir: Hulda Valdimarsdóttir (f. 10. sept. 1922, d. 13. sept. 1981). M. (18. apríl 1990) Gísli Arnór Víkingsson (f. 5. ágúst 1956) cand. scient, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. For.: Víkingur H. Arnórsson læknir og prófessor og k. h. Stefanía Gísladóttir. Börn: Ögmundur Viðar (1977), Ingibjörg Helga (1992).
Lauk námi í félagsfræði og félagsráðgjöf frá Roskilde Universitetscenter 1983, framhaldsnám við sama skóla í fjölmiðlafræði 1983-1985, cand. comm.-próf 1985.
Vann ýmis störf áður en nám hófst, m.a. á dagskrárdeild ríkisútvarpsins, var sviðsmaður í Þjóðleikhúsinu, uppeldisfulltrúi við sérdeildir Hlíðaskóla og starfaði á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Starfsmaður SÍNE 1985-1988, verkefnisstjóri hjá LÍN, handleiðsla hjá Styrktarfélagi vangefinna, framkvæmdastjóri námskeiða fyrir aðstandendur fatlaðra barna og félagsmálafulltrúi hjá Sjálfsbjörgu. Yfirfélagsráðgjafi á kvennadeild Landspítala 1988-1994 og stundakennari við læknadeild og félagsvísindadeild HÍ. Deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu 1998-1999.
Guðrún hefur nýlega lokið afrónámskeiði í Kramhúsinu.
Eiginmaður Guðrúnar, Gísli Víkingsson, mun flytja út með henni og mun leiðbeina Zimsenbabwískum veiðimönnum um sjálfbæra nýtingu og vísindaveiðar á trúvilltum dvergum.